Lánveiting til Íslandspósts
(1804204)
Fjárlaganefnd
Nefndarfundir
Dagsetning | Fundur | Bókun |
---|---|---|
21.11.2018 | 22. fundur fjárlaganefndar | Lánveiting til Íslandspósts Til fundarins komu Guðbjörg Sigurðardóttir, Skúli Þór Gunnsteinsson og Ottó Winther frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu. Fjallað var um málefni Íslandspósts ohf. út frá ábyrgðarsviði ráðuneytisins og svöruðu gestirnir spurningum nefndarmanna. Kl. 9:46. Til fundarins komu Ingimundur Sigurpálsson og Bjarni Jónsson frá Íslandspósti ohf. Farið var yfir stöðu fyrirtækisins og rætt um fyrirkomulag í dreifingu pósts. Þá svöruðu gestirnir spurningum nefndarmanna. |
19.11.2018 | 21. fundur fjárlaganefndar | Lánveiting til Íslandspósts Til fundarins komu Sigurður Helgi Helgason og Jón Gunnarsson frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Þeir kynntu lausafjárvanda Íslandspósts ohf. og mögulega þörf á því að ríkissjóður leggi félaginu til aukið lánsfé eða eigið fé um allt að 1,5 milljarða króna sbr. 6. gr. frumvarpsins. Innifalin í þeirri fjárhæð er 500 m.kr. lánsfjárheimild sem mun koma fram í væntanlegum fjáraukalögum fyrir árið 2018. |
02.05.2018 | 44. fundur fjárlaganefndar | Fjárhagur ríkisfyrirtækja Til fundarins komu Björn Óli Hauksson og Sveinbjörn Indriðason frá Isavía. Þeir fóru yfir fjármál fyrirtækisins, framtíðaráform og svöruðu spurningum nefndarmanna. |